PEP Housing ehf. og Smáíbúðir ehf. kynna lausn við að koma upp umhverfisvænu og hagkvæmu íbúðahúsnæði á Íslandi í líkingu við það sem rutt hefur sér til rúms víða erlendis. Um er að ræða nýtingu sjálfstæðra íbúðaeininga sem byggingarefnis fyrir fjölbýlishús með það að leiðarljósi að halda kostnaði í lágmarki og afhendingartíma stuttum. Með því vonast aðstandendur verkefnisins til þess að unnt verði að bjóða upp á hagkvæmt og vistvænt leiguhúsnæði og mæta þannig brýnni þörf fyrir slíkt húsnæði.
PEP Housing ehf. hefur umsjón með þróun og smíði og Smáíbúðir ehf. annast áframleigu og sölu. Markmiðið er að tryggja að einingarnar standist allar kröfur byggingarreglugerða í samráði við Mannvit verkfræðistofu. Teikningar sem lagðar verða fyrir bygginganefndir liggja fyrir. Fyritækið hefur mótað sér umhverfisstefnu en unnið verður markvisst að því að íbúðirnar og starfsemi fyrirtækisins verði umhverfisvottuð.
Mannvit, Verkfræðideildin er með yfirumsjón með hönnun og teikningum.
Húsvernd, Sér um smíðavinnu og umsjón undirbúnings og frágangs
Límtré Vírnet, Þróar og framleiðir utanáliggjandi klæðningar og einangrun
Loftorka, Þróar og framleiðir utanáliggjandi stigaganga, lyftuhús og sökkla
Gluggagerðin, Hönnun og smíði glugga og hurða
Iðntré, Hönnun og framleiðslu innréttinga
GH Lagnir, Sér um pípulagnir og þróun lagnalausna
Straumleiðir, Sér um raflagnir og samskiptakerfi
Rafkaup, Hönnun lýsingar
Flotgólf, Gólfílögn
Þessi nýja lausn hefur verið kynnt fulltrúum ríkis og sveitarfélaga. Viðbrögð hafa verið jákvæð og flestir sjá tækifæri í að bregðast skjótt við núverandi vanda á leigumarkaði með lausnum fyrirtæksins. Vert er að benda á að jafn auðvelt er að taka niður íbúðirnar og að koma þeim upp þannig að lausnin hentar ákaflega vel þar sem skipulagsvinnu er ekki lokið.
Auk þeirra sem að ofan greinir hefur fjöldi einstaklinga og fyrirtækja veitt ómetanlegan stuðning og aðstoð m.a. gerði R.B.RUM í Hafnarfirði okkur kleyft að sýna íbúðina með uppbúið rúm.
Hafið samband við: abo@pep.is